MAFÍAN




   

<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Saturday, March 12, 2005
Á leiðinni!!!

Langar bara að deila því með ykkur að næsta laugardag verð ég komin í bæinn!!! og viti menn... Í svörtum fötum eru að spila á Nasa það kvöld!!! HVER VILL KOMA MEÐ???????
Annars ætla ég að vera í bænum nokkra daga (fram á fimmtudag)... kíkja í eina veislu eða svo og hitta gott fólk. Vini og kunningja - vonandi bara sem flesta!!!!

Hlakka til að sjá ykkur....
Þangað til bæ
Drífa

Posted at 01:24 pm by mafian
Make a comment  

Monday, February 21, 2005
Konudagurinn!!!

Jæja þá er ég loks staðin upp úr rúminu. Fékk reyndar að fara aðeins út í gær. Mikið var það yndislegt. Meira segja það að fara út og hengja upp þvott var yndisleg tilfinning. Enda sól og blíðskaparveður. Hélt að vorið væri komið. Og held enn í vonina um að það sé komið og fari ekkert fyrr en sumarið kemur. Bæði í dag og gær er búið að vera yndislegt veður.
En ég sem sagt komst ekki á ball á laugardag eins og ég hafði ætlað mér upphaflega vegna þessarar yndislegu flensu!!! var reyndar orðin hitalaus á laugardagsmorgun eeeenn tók ekki sénsinn á að leggjast aftur svo að ég var bara heima hjá mömmu og pabba + fjórum litlum grísum. Nei ekki svona svínum heldur börnum.. .óttalegir grísir. En skilst þó að það hafi bara verið gaman á balli.

En sá skemmtilegi dagur KONUDAGURINN var í gær!! Ekkert hugsað voðalega mikið út í þennan dag þar til nú. EN að sjálfsögðu fékk ég blóm :D voða ánægjulegt það. og svo var mér nú líka boðið út að borða. Og þar sem ekki er úrvalið mikið af veitingastöðum hér á þessu landshorni var valið á milli Shell, Söluskála og Yfir borðið (sem er bara pizza 67) og Pizzan var valin og var það bara nokkuð huggulegt.  En já fyrir ykkur sem kannski ekki vissuð... og eruð að reyna að lesa á milli línanna hér... þá er ég jú sú sem hef verið fundin af karlkyns gullmola :) (sem kemur að sjálfsögðu frá Eskifirði... enda annað ekki tekið í mál hjá MAFÍUNNI :) )  Og það má nú eiginlega segja að ég hafi fengið konudagA! þar sem svo vel hefur verið hugsað um mig síðasta mánuðinn eða svo og að ég tala nú ekki um þessa síðustu og verstu daga. Held að mér hafi sjaldan eða aldrei liðið svona illa og vel bæði í einu... illa vegna veikinda en vel vegna ástar og umhyggju. Jahá TAKK fyrir það!

Annars er hér allt við það sama. Fór í vinnu í dag - hefur ekki gerst síðan síðast þriðjudag - Ótrúlega gaman... en samt erfitt þar sem þessi flensa virðist draga allan mátt úr manni og tekur smá tíma að ná upp aftur.. um hádegi var ég orðin eins og undin tuska :/  en þetta hefst allt saman.. nú fer maður að mæta í ræktina aftur og byrja að vinna upp það sem tapast hefur!!!

Var á mínum reglulega bloggsíðurúnti.. sá þar að mikið fjör hefur verið í keilu (allavega hjá sumum) og menn verið miskröftugir í búningahönnun. En ég efast ekkert um að fjörið hefur ekki verið minna en í fyrra.. og þá var sko ekki leiðinlegt!!! (Reyndar eitthvað svindl í búningaverðlaununum þar....hlítur að vera því MAFÍAN fékk ekki verðlaun) Spurning hvort Steinar hafi tekið þátt í einhverju veðmáli þetta árið???? Getur einhver sagt mér það??? Það má kannski ekki segja neitt um það fyrr en eftir árshátíð :):)

En nú vil ég bara biðja ykkur vel að lifa  og skemmtið ykkur ekki of lítið!!!
Kveðja Drífa

Posted at 08:40 pm by mafian
Comments (2)  

Friday, February 18, 2005
4 dagur í ógeði

Já það er víst kominn tími til að skrifa eitthvað hér inn.... og meira að segja fyrir löngu.
En það hefur nú bara verið þannig að það er ekkert mikið búið að vera að gerast hér á austurlandinu.
En nú er ég búin að liggja heima í flensu síðan á þriðjudag...hiti, hálsbólga, kvef og beinverkir.. þvílíkt ógeð!!! og er ekki alveg að sjá fram á að ég komist á Papaballið sem á að vera á Egilsstöðum á morgun :( Bara búin að bíða eftir því í svona 3 vikur :(:(

Nú styttist í árshátíð Kennó.. maður er nú aðeins búinn að fylgjast með á þeirri síðu og ekki hægt að segja annað en að smá fiðringur sé farinn að segja til sín og hver veit nema maður láti sjá sig.. fer allt að koma í ljós.

Man ekki eftir neinu fleiru til að segja hér í bili... enda hugsunin ekki alveg upp á sitt besta eftir allan þennan hita..
Reyni að skrifa hér inn bráðlega og skora á hina meðlimina til að gera slíkt hið sama :)


Drífa

Posted at 12:37 pm by mafian
Make a comment  

Saturday, January 29, 2005
Í fljótheitum :)

Hæbb...best að skrifa nokkur vel valin orð á nokkuð gráu og blautu laugardagsmiðdegi áður en maður drukknar í verkefnum lífsins.
Annars er allt gott að frétta af mér, hef reynt að halda geðheilsunni í lagi síðustu vikur með mismiklum árangri og hafa sumir víst fengið smjörþef af því, ekkert voðalega stolt af því sko. Vinnan mín er mun meira krefjandi en ég bjóst við enda mjög merkilegt að standa í sömu sporum, aldurslega séð, og einstaklingarnir sem ég vinn með og því oft svoltil dilemma þar. Þrátt fyrir það gef ég mig 100% í hana og kannski aðeins meira en það þegar þess er þörf :) Bakarísvinnunni sinn ég jú enn en mun minna - fattaði það þó að ég þyrfti að halda heilsunni og minnka álagið að einhverju leyti.
Árshátíðarundibúningur hefur sett svip sinn á hugsanaflóðið, sem er bara skemmtilegt, en gvuð hvað er stutt í þetta allt :) Allir velkomnir!!
Ég er að byrja í vettvangsnámi svo á miðvikudaginn og þarf víst að halda mér vel við efnið og sýna hvað í mér býr. Leiðinlegt þó að vita af því að það gæti verið margt í þessu sem ég þekki vel úr eigin starfi nema þá að ég er ekki þroskaþjálfi. Markmiðið er jú að læra hvernig þroskaþjálfinn vinnur. Á vettvangsstaðnum mínum búa einstaklega áhugaverðir einstaklingar....næstum jafn áhugaverðir og þeir sem ég vinn með dagsdaglega svo það er kannski ekki mikil tilbreyting að því leytinu til :)

Jæja....það er sem sagt allt gott að frétta úr skólanum...3. árs nemar ólmir að útskrifast og ég er engin undantekning frá þeim hópi. 11. júní er aðaldagurinn í lífi mínu núna, fram að honum þarf ég að vinna eins og meiníakk og eftir hann tekur nýtt líf við. Hvaða líf það verður veit ég hreinlegast ekki því ég né enginn annar getur sagt mér hvað tekur við. Hvort það verði veruleiki þroskaþjálfans, veruleiki ósofins og yfirtjúnaðs háskólanema, veruleiki ásta og nærveru, veruleiki vinnu eða veruleiki einskis. Alla vega stefni ég á 11. júní og eru allar ábendingar vel þegnar um hvaða veruleika ég megi vænta.
Að vita það að ég viti ekki hvar ég verði eftir 11. júní myndar bæði gleði og hræðslu, oflæti og þunglyndi. Ég held að ég treysti því bara að einhver annar sjái um þetta fyrir mig frá og með deginum í dag, takk :) best að sleppa þessum hugsunum....

Þessa dagana rigna yfir mig gleðifréttir um gott gengi vina minna í ástarleit og fjölskyldumyndun. Ein besta vinkona mín er bara með bumbubúa á stærð við hunangsmelónu og ég er ekkert smá glöð fyrir hennar hönd enda er þetta búinn að vera draumur hjá henni lengi. Ótrúlega stolt af henni og er hún ein af þeim heppnu í heiminum sem fær að njóta þess að vera ólétt og eignast krakkakríli. Það er bara eitt af fáu ómetanlegu. Nú önnur góð vinkona mín hefur loks verið fundin af ungum manni í ástarleit :) og finnst mér það algjör snilld.....maður á nebblega bara að láta finna sig ekki leita sjálfur....maður fær sko gimsteinana þegar maður lætur finna sig :)


Jæja...ætli ég verði ekki að læra eitthvað svo ég nái að útskrifast, metnaðurinn er jú alveg í botni - hér gefst enginn upp....það er ekki viðurkennd aðferð til árangurs :)
sæl að sinna....get ekki lofað að það heyrist í mér næstu vikur...mætiði bara á árshátíðina og þá getiði bæði hitt mig og séð mig, drukkið með mér, djammað með mér en ég lofa ekki að ég verði mikið til tals né að þið meira en 20 sekúndur til þess sem ég hef talið hér upp...það hljóta flestir sem þekkja mig að vita :)

Eigið ánægjulegan mánuð
Birna súpervúmen!!!!

Posted at 03:22 pm by mafian
Comments (2)  

Friday, January 21, 2005
Þorrþræll

Heidó
Finally fréttir frá Húsavík. Hef haft svo mikið fyrir stafni að ég hef ekki gefið mér tíma til að rita inn á þessa ágætu síðu. Er ein heima í villunni minni núna þar sem ég sendi karlinn til Vopnafjarðar á þorrablót og nennti engan veginn að fara sjálf.
Nú eru það annaskilin sem hafa átt hug minn allan. Ég var með foreldraviðtöl í dag sem var reyndar alveg ágætt, enda eru nemendur mínir alveg stórfínir og yfir fáu að kvarta. Þessi önn er búin að vera lærdómsrík og skemmtileg og alls ekki þetta "helvíti" eins og margir lýstu fyrsta árinu í kennslu. Ég læri eitthvað nýtt á hverjum degi og vona auðvitað að það sama eigi við um nemendur mína. Auðvitað er þetta erfitt suma daga og mikið að gera en yfirleitt finnst mér forréttindi að vera kennari. Vonandi verður það þannig áfram.
Það er ekkert að minnka snjórinn hér á Húsavík, síður en svo, það bætir endalaust í. Ég ætlaði í heimsókn til mágkonu minnar í dag og ég fann nánast ekki húsið hennar. Það er bókstaflega á kafi í snjó. Ég er líka búin að sjá það út að ef ég ætla að búa í þeim hluta bæjarins sem ég bý í, verð ég að fá mér jeppa eða alla vega fjórhjóladrifinn bíl. Ég er tvisvar búin að þurfa að skilja bílinn minn eftir niður í bæ og fá far heim. Ég ætlaði að skjótast heim á þriðjudaginn og ná í skíðin mín en það var aldeilis ekki að ganga því að ég komst ekki upp síðustu brekkuna að húsinu mínu vegna hálku. Ég varð aldeilis ekki glöð og hringdi í bæjarstarfsmenn og sagði þeim að mér leiddist að komast ekki heim til mín. Þeir brugðust skjótt við og söltuðu brekkuna fyrir mig þannig að ég komst heim seinna um daginn. Ég er engan veginn að kyngja því að ég þurfi að selja Avensisinn minn. Svona hafa síðustu daga verið, ég hef rétt svo komist heim til mín og stundum þurft margar tilraunir við helv. brekkuna. Ég sem er búin að búa í 5 ár á stað þar sem sumardekk duga til að koma manni á milli staða á veturna. En svona er lífið. Annars er ekkert spennandi að gerast hjá mér þessa dagana, alla vega ekkert í líkingu það sem er að gerast í sveitinni í nánd við Egilsstaði:) Ég skora á stöllur mínar að halda áfram að skrifa eitthvað skemmtilegt:)

Posted at 08:02 pm by mafian
Comments (3)  

Tuesday, January 11, 2005
Halló Eskifjörður

Já ég er nú ekki frá því að Eskifjörður ætti að fá einhvern heiðurs- eða sæmdartitil hjá MAFÍUNNI... alltaf virðist þessi ágæti staður, sem er jú á sjálfu austurlandinu, tengjast einhverjum meðlimum á einhvern hátt.... (skildi Bjarki vera staðsettur þar???...  hef ekki heyrt hann kalla....ELÍÍÍÍN....)
Það vildi nú svo skemmtilega til að ég ákvað að skella mér á djammið hér um síðustu helgi...laugardagskvöldið nánartiltekið. En jújú, kvöldið byrjaði á matarboði.. ég og 3 drengir ;) 2 samsveitungar og 1 Eskfirðingur... borðað var og drukkið og svo var farið að spila. Fyrst Fimbulfamb, sem getur verið ótrúlega skemmtilegt.... allavega ef maður spilar við skemmtilegt fólk, og svo Actionary sem var ekki leiðinlegra.. spilað var nokkrum sinnum og undir lokin komumst við að því að eitt leiðir af öðru.. og þannig vann mitt lið ;) Síðan var ákveðið að kíkja á barinn og það var bara alveg ágætt.. spjallað við mann og annan... Þar hitti ég svo enn einn Eskfirðing... jújú drenginn í jakkanum (og ekki jakkanum og svo jakkanum en svo ekki jakkanum) á NASA forðum daga... hann er farinn að sakna hinna tveggja MAFÍUmeðlimanna og sagðist VERÐA að fá að hitta þessar dömur aftur því þær væru æðislegar... skemmtilegur gaur það :)

Lokað klukkan 3 og þá var fólkið nú ekkert á því að fara að sofa svo farið var að leita að partyi.. gekk ekki vel þannig  að við vorum 3 sem skelltum okkur bara heim til fyrrum gestgjafa og höfðum gaman... eitthvað var bullað fram eftir kvöldi en svo var gerð tilraun til að sofa en gekk svona upp og niður... En það getur verið flókið fyrir fleiri en einn að koma sér fyrir í litlum en þó mögnuðum sófa... :) 
En það má segja að þetta hafi verið alveg heljarinnar skemmtun og ætli orð skemmtunarinnar hafi ekki bara verið "Eitt leiðir af öðru!" :)

Segi ekki meir í bili.... Drífa

Posted at 06:51 pm by mafian
Comments (6)  

Wednesday, January 05, 2005
hædihó

Hæhhæ og hóhó og hí híhí

Já nú er gaman!!
Loksins komin með nýja bílinn!!!! Sem er jú nýr BLÁR AVENSIS!!! búin að bíða eins og krakki eftir jólunum í heilan mánuð!!!!
En hann er eiginlega bara ógeðslega flottur!!! og ekkert hægt að segja meira við þvi :)

Já og svo er kennslan byrjuð aftur.. það er fínt.. Búið að skipuleggja nánast alla kennslu fram á vor :) þvílikur dugnaður!!

Annars hef ég ekki  meira að segja eins og er.. vildi bara deila gleði minni og ánægju  með ykkur!!
Endilega farið svo að kíkja í heimsókn til mín!!! ekki eins og það sé mikið um að vera hér...!!! vantar fólk til að skemmta mér

Bæbæbæb
Drífa

Posted at 08:17 pm by mafian
Comments (5)  

Monday, January 03, 2005
Happí njú jír!!!

Hejsa allihoppa :).....núna er komið nýtt ár...svei mér þá...hvað ætli gerist nú á því.
Mikið er ég fegin að árið 2004 er búið....frekar mikið að gerast á því ári sem ég ætla ekki út í hérna heh. Ég er fyllilega sammála systrum mínum með það að stofnun MAFÍUNNAR stóð uppúr árið 2004 og ég skil ekkert í því að það hafi ekki komið fram í neinum annál hvað þá í skaupinu. Well....ætli þetta sé ekki bara soltið lókal :)

Hmmm...en hei...hér sit ég í "vonsku" veðri á Suðureyri við Súganda og hlusta á fréttir þess efnis að allt sé í klessu hér fyrir vestan.....allt í snjó og snjóflóð að falla hist og her. Það er nú samt soltið til í því þar senm ekki er fært yfir á Ísafjörð því það féll snjóflóð á veginn hérna í firðinum. Heppilegt!
Mér finnst þetta samt alveg æði....gæti ekki beðið um meira.

Það var annars svaka fjör hjá mér á gamlárs...fagnaði nýju ári með "tengda"fjölskyldunni ekki manninum mínum sem var nú bara soltið merkileg lífsreynsla....svona í faðmi yndislegs fólks sem ég þekki ekkert svakalega mikið. Einar fór að leika hetju í löggunni snemma á gamlárskvöld og ég var að partíast með þessu fína fólki. Á miðnætti var svo sprengt og ég get nú ekki sagt að maður hafi séð neitt svaka mikið af ljósunum því það skóf svo skemmtilega mikið......maður var vel hvítur þegar maður fór aftur inn :)
Núh svo var drukkið meira og spjallað heilan helling og svo skellt sér á ball. Ég sver það...mér fannst ég bara vera komin á Dallas aftur....allt svo lítið og skemmtilegt...svona sveitaball með rentu. Þarna var slatti af fólki...svona miðað við höfðatölu hér í bæ...og það var sko dansað. Hljómsveitin...sem ég man ekki hvað hét....skartaði íslenskum söngvara sem er búsettur í Svíþjóð og greyið þurfti að hafa sig allan við að með að muna textana. Fjölskyldumeðlimir tróðu upp og tóku lagið og þá var stiginn hringdans og HÓKÍ PÓKÍ!! Ég....af minni einskæru snilld.....smellti mér úr skónum í byrjun balls og dansaði á tásunum allt kvöldið :) Flestum þótti ég nú heldur brött en ég bara held að þeim hafi fundist þetta ágætis uppátæki þegar leið á kvöldið. Ég get nú ekki fullyrt að þetta hafi verið voðalega gáfulegt hjá mér en hvað gerir maður ekki fyrir tvistið, hah? Fæturnir voru samt ágætlega svartir og vinstri fóturinn er soltið blár :)
Núh svo fór ég í partí....og var það til kl 7 eða 7:30...spjallaði þar við mann og annan sem skyldi ekkert í því hver ég væri eða hvaðan ég kæmi. Þarna hefði ég þurft upplýsingarfulltrúa! Mér fannst þetta samt alveg hrikalega skemmtilegt....gat leikið smá :)
Eftir allt saman þá fékk ég svo titillinn Nýársdísin frá eldri herramanni hér í bæ og ég ætla að bera titilinn með stolti :I

Ég ætla nú að segja þessum pistli mínum lokið....því ekkert meir hefur drifið á daga mína nema snjór og snjóflóð, matur og svefn svo að ég óska ykkur bara gleðilegs árs krúsíbollurnar mínar

Kveðja af eyrinni
Börní

Posted at 11:10 am by mafian
Comments (1)  

Friday, December 31, 2004
Nú árið er liðið.....

Þá er árið að verða búið!!! Þetta yndislega ár!!!
Mikið búið að gerast og ég held að uppúr standi að sjálfsögðu stofnn MAFÍUNNAR!!!

Kvöldið verður svo tekið með góðum mat, flugeldum og væntanlega balli!!! 

En ég vil að lokum þakka fyrir árið sem er að líða... og vona að það næsta verði lika gott!!
Takk fyrir og gleðilegt nýtt ár!!
Drífa
p.s. bara 3 dagar í nýja bílinn ;)

Posted at 11:21 am by mafian
Comments (2)  

Sunday, December 26, 2004
Er á kafi í snjó :/

Gleðileg jól alle sammen. Ég ákvað að setjast aðeins fyrir framan tölvuna en það hef ég varla gert síðan i október. Ég er loksins búin að koma mér fyrir í nýja húsinu og farin að geta slappað af. Þetta var að verða ágætis törn í málningu, parketi og flísum, svo ég gleymi ekki þrifum. Það er svona allt að verða fínt hérna en samt er smá eftir...en það bíður bara betri tíma.

Það er frekar fyndið að heyra stöllur mínar tala um snjóleysi þar sem ég er að drukkna í snjó. Það hefur varla verið snjór á Húsavík sl. ár þannig að mér fannst upplagt að flytja hingað en hvað gerist þegar ég er flutt, bærinn fer á kaf. Við fengum margra daga óveður hér á Húsavík. Það hófst allt 22. desember og lauk ekki fyrr en þann 25. des. Þegar ég vaknaði 22. des og leit út, sá bílana mína hvergi. Þá var hafist handa við að moka og fannst Avensisinn eftir klukkutíma leit. Það er enn verið að leita að vinnubílnum en við höldum enn í vonina að hann finnist heill á húfi þegar snjóa leysir. Þetta var bara dagur nr. 1 í óveðri. Þorláksmessa var ekki skárri enda dó öll stemming í bænum það kvöldið þar sem bærinn var nánast ófær og veðrið svo slæmt að það var ekki hundi út sigandi. Ok. við héldum í vonina að aðfangadagur yrði bara þokkalegur en nei, alls ekki. Þá átti veðrið enn eftir að versna og þið sem ekki fenguð jólakort frá mér, sorry, það var gjörsamlega ófært þannig að þau eru heima hjá mér ef þið viljið nálgast þau. Við fórum á bílnum okkar til mömmu og pabba til að borða jólamatinn og komumst þangað með herkjum Síðan þegar við ætluðum heim var enginn vegur að fara á okkar bíl þannig að pabbi skutlaði okkur eins langt og hann  komst og við löbbuðum restina. Þrátt fyrir allan þennan snjó hafa jólin verið alveg fín, afslöppun og aftur afslöppun og auðvitað frekar jólalegt með allt á kafi:)
Bið að heilsa öllum.
Kv. Elín

Posted at 01:40 pm by mafian
Comments (2)  

Next Page